Glæný og ögrandi ópera
um stúlku með verkstol og drottningu sem leiðist
Þegar hirðbílstjórinn veikist neyðist drottningin til að taka leigubíl. Leigubílstjórinn finnur ekki höllina á GPS og er um leið rekin – en drottningin getur samt ekki hætt að hugsa um hana. Hana langar að vita hvers vegna almenningur er svona niðurdrepandi og hvort hún getur komið til hjálpar. Kannski er til einhver meðferð eða mögulega aðgerð eða jafnvel áskorun.
Óperan hundrað þúsund fjallar um molana sem hrynja af svignandi borðum, detta í gólfið og eru fljótlega ryksugaðir.
Leikhópurinn Svartur jakki setur óperuna upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Svartur jakki setti áður upp óperuna KOK í Borgarleikhúsinu, eftir sömu höfunda. KOK hlaut mikið lof, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarviðburður ársins og tilnefningar til Grímuverðlaunanna.