top of page
< Back

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Leikmynd og búningar

Guðný Hrund Sigurðardóttir er sjálfstætt starfandi leikmynda og búningahönnuður í sviðslistum. Hún útskrifaðist með Ba gráðu í leikmyndahönnun árið 2011 og hefur síðan þá starfað sjálfstætt að hinum ýmsu sviðslistaverkum. Mörg verkin sem hún hefur tekið þátt í hafa verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna og hefur hún einnig verið tilnefnd 5 sinnum fyrir sína vinnu og unnið ein fyrir búninga árið 2019 fyrir sýninguna Eyður unnin með sviðslistahópnum Marmarabörnunum.Hún hefur unnið mikið með listafólki innan sjálfstæðu senunnar eins og Marmarabörnum, Sögu Sigurðardóttur, Önnu Kolfinnu Kuran, Rósu Ómarsdóttur og fleirum. Guðný er einn af listrænum stjórnendum sviðslistahópsins Bíbí & blaka sem gerir verk með áherslu fyrir börn. Allar sýningar Bíbí og blaka hafa verið tilnefndar til Grímuverðlaunanna fyrir barnaverk ársins og hlaut þau verðlaun fyrir sýninguna Vera og vatnið árið 2016. Hún er hluti af teyminu sem vinnur að Krakkaveldi með þeim Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og Hrefnu Lind Lárusdóttur. Guðný brennur fyrir hugmyndavinnu og nýtur þess að útbúa heim í kringum verkin sín sem dansa oft á mörkum sviðs og myndlistar.

Guðný Hrund Sigurðardóttir
bottom of page