Þórunn Gréta Sigurðardóttir nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk forprófi í tónsmíðum árið 2008, B.A. í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands 2011 og M.Mus. við Hochschule für Musik und Theater Hamburg árið 2014. Tónsmíðakennarar hennar voru Úlfar Ingi Haraldsson, Atli Ingólfsson og Manfred Stahnke. Hún var virkur þátttakandi í Internationale Ferienkurse für Neue Musik Darmstadt árið 2012 og sótti meistaranámskeið hjá Brian Ferneyhough, Georges Aperghis og fleirum.
Tónlist hennar hefur verið flutt af ýmsum sveitum og einsöngvurum, svo sem Caput Ensemble, Cikada Ensemble, Skark Ensemble, Duo Harpverk, Kristinn Sigmundsson, Hönnu Dóru Sturludóttur, Elisabeth Holmertz og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Í síðustu verkum sínum hefur hún verið að gera tilraunir með form nútímatónlistarleikhúss og tónlistar í tengslum við texta og hljóðfræði auk þess að semja hljóðheim við leiksýningar, söngtónlist og kammertónlist.