Glæný og ögrandi ópera
um stúlku með verkstol og drottningu sem leiðist
Þegar hirðbílstjórinn veikist neyðist drottningin til að taka leigubíl. Leigubílstjórinn finnur ekki höllina á GPS og er um leið rekin – en drottningin getur samt ekki hætt að hugsa um hana. Hana langar að vita hvers vegna almenningur er svona niðurdrepandi og hvort hún getur komið til hjálpar. Kannski er til einhver meðferð eða mögulega aðgerð eða jafnvel áskorun.
Óperan hundrað þúsund fjallar um molana sem hrynja af svignandi borðum, detta í gólfið og eru fljótlega ryksugaðir.
Leikhópurinn Svartur jakki setur óperuna upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Svartur jakki setti áður upp óperuna KOK í Borgarleikhúsinu, eftir sömu höfunda. KOK hlaut mikið lof, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarviðburður ársins og tilnefningar til Grímuverðlaunanna.
Listrænir stjórnendur
Flytjendur
Sýningarstjórn: Guðmundur Erlingsson
Förðun: Alda Úlfarsdóttir
Aðstoð við leikmynd: Sean Patrick O'Brien
Aðstoð við búninga: Alexía Rós Gylfadóttir
Myndband: Hákon Pálsson
Sviðsfólk: Sigurður Hólm Lárusson, Alexander John George Hatfield, Eglé Sipaviciute, Jasper Bock, Aida Gliaudelyte, Óskar Dagur Marteinsson, Siobhán Antoinette Henry
Sérstakar þakkir:
Ragnheiður Maísól
Kolfinna Nikulásdóttir
Tinna Grétarsdóttir
Áki Ásgeirsson
Bæjarins beztu
MYNDIR FRÁ ÆFINGUM
ÓPERAN HUNDRAÐ ÞÚSUND NÝTUR STYRKJA FRÁ EFTIRTÖLDUM AÐILUM:
Svartur jakki
Svartur jakki er menningarfélag sem hverfist um uppfærslur á nýjum íslenskum tón- og sviðsverkum.
Árið 2021 setti Svartur jakki upp óperuna KOK í Borgarleikhúsinu og hlaut hún mikið lof áhorfenda. Óperan KOK var tilnefnd til Grímuverðlaunanna og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarviðburður ársins 2021.
CRESCENDO framleiðir verkefni fyrir Svartan jakka.