knega
Björg Brjánsdóttir
– einleiksverk fyrir flautu
eftir íslensk samtímatónskáld
GROWL POWER er heiti á einu tónverka Báru Gísladóttur og jafnframt titillinn á fyrstu sólóplötu Bjargar Brjánsdóttur flautuleikara þar sem hún leikur verkið ásamt þremur öðrum verka Báru. Öll verkin eru samin sérstaklega fyrir Björgu.
GROWL POWER er einnig heiti á tónleikaprógrammi þar sem Björg flytur öll verkin af plötunni á tónleikum. Verkin eru flutt í heild, án hlés.
Verkefnið hófst með tónleikum á Myrkum músíkdögum 2024 þar sem Björg flutti efnisskrána í Norðurljósum í Hörpu á opnunarkvöldi hátíðarinnar. Tónleikarnir hlutu einróma lof og á efnisskráin fullt erindi á dagskrá tónlistarhátíða, tónleikaraða eða sem sjálfstæðir tónleikar metnaðarfullra tónlistarstaða. Helst er horft til tækifæra á meginlandi Evrópu, á Norðurlöndum og á Bretlandi en einnig til Kanada, Bandaríkjanna, Ástralíu og Nýja-Sjálands.
Tónleikarnir eru tiltölulega einfaldir í uppsetningu og tækniþarfir er hægt að aðlaga aðstæðum, upp að vissu marki. Efnisskráin hentar þess vegna afar vel til flutnings við fjölbreytt tækifæri.
Samtímis tónleikunum á Myrkum músíkdögum voru verkin gefin út á streymisveitum en þau höfðu áður verið hljóðrituð undir upptökustjórn Bergs Þórðarsonar. Í kjölfar tónleikanna hófst framleiðsla á vínylplötu sem kemur út haustið 2025. Vínylplatan verður gefin út í 200 eintökum, ásamt 100 geisladiskum. Platan verður svo endurútgefin um leið á öllum helstu streymisveitum.
knega er gefin út af Smekkleysu á vínylplötu og öllum helstu streymisveitum.
Flytjandinn
Björg Brjánsdóttir flautuleikari vinnur með ýmsum hópum þvert á tónlistarstefnur ásamt því að semja eigin tónlist og hefur hún einbeitt sér síðastliðin ár að samstarfi við ýmis tónskáld og flutningi á nýjum einleiksverkum fyrir þverflautu.
Björg var tilnefnd sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022 og hefur meðal annars komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Elju kammersveit, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Íslenska flautukórnum. Hún er flautuleikari tónlistarhópsins Caput og hefur sinnt fjölmörgum hljómsveitarverkefnum, að mestu í Þýskalandi, í Noregi og á Íslandi. Björg tilheyrir flautuseptettinum viibru sem hefur unnið með Björk Guðmundsdóttur frá árinu 2016 og ferðast með henni um heiminn til að flytja tónsýningu hennar, Cornucopiu.
Björg útskrifaðist af einleikarabraut frá Tónlistarháskóla Noregs vorið 2017 og hefur auk þess stundað nám í þverflautuleik við Tónlistarháskólann í Hannover, Tónlistarháskólann í München og Konunglega danska tónlistarháskólann.
GROWL POWER er fyrsta plata Bjargar. Önnur plata er væntanleg með verkum eftir sex ólík tónskáld.



Verkin
Smellið á verkaheiti til að fá meiri upplýsingar um verk og tónskáld.
minni ii: idyll
Berglind María Tómasdóttir
Tónasekúndur I
Tumi Árnason
Fjerkvinder
Nanna Lysdahl
Tónasekúndur II *
Tumi Árnason
Blöndun/Fusione
Ingibjörg Turchi
Tónasekúndur III
Tumi Árnason
Faint
Haukur Þór Harðarson
Öll verkin voru samin árið 2023 og frumflutt af Björgu Brjánsdóttur sama ár.
*Tónasekúndur II eru eingöngu aðgengilegar á streymisveitum.