
Hildigunnur Rúnarsdóttir er fædd árið 1964 í Reykjavík. Hún stundaði nám við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík með tónsmíðar sem aðalgrein og lauk þaðan prófi vorið 1989. Kennarar hennar voru Þorkell Sigurbjörnsson og Atli Heimir Sveinsson. Í framhaldinu stundaði hún nám í tónsmíðum í Hamborg hjá prófessor Günter Friedrichs og í Kaupmannahöfn hjá Svend Hvidtfelt Nielsen. Hildigunnur hefur starfað mikið með ýmsum kórum, þ.á.m. sönghópnum Hljómeyki. Verkskrá hennar er umfangsmikil og kórverk og kammertónlist eru í fyrirrúmi. Hún hefur samið fjölda kórverka og sönglaga og er Vorlauf eitt þekktasta verk hennar. Önnur verk eru m.a. barnaóperurnar Hnetu-Jón og gullgæsin og Gilitrutt, Blandaðir dansar fyrir hljómsveit, Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit, Guðbrandsmessa, fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2003 og tónlist í heimildamyndir Ásdísar Thoroddsen. Verk Hildigunnar, Syngur sumarregn, fyrir sópran og kór og Andvökunótt fyrir baritón og kór hafa verið valin á geisladiska kórahátíðarinnar Europa Cantat. Hildigunnur hefur tvívegis verið valin tónskáld mánaðarins hjá hinu virta kórsamfélagi Choralnet.org og fékk einnig Silver Platter Award frá Composers’ Society, einnig hjá Choralnet. Verk Hildigunnar eru reglulega flutt víða um heim.
Hildigunnur starfar við tónsmíðar, kennslu og söng í Reykjavík.