In·Between | Estonian Philharmonic Chamber Choir og Cantoque Ensemble
In·Between er regnhlífarheiti yfir samstarf Crescendo, Estonian Philharmonic Chamber Choir og Cantoque Ensemble. Kórarnir munu flytja tónleikadagskrá sem samanstendur af sérpöntuðum, um 15 mín. kórverkum fyrir tvo kóra eftir þau Huga Guðmundsson (IS/DK) og Helenu Tulve (EE. Verkin munu ramma inn flutning á hinni þekktu Messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin. Einnig verða flutt önnur samtímakórverk frá Íslandi og Eistlandi eins og efnisskrá leyfir.
Aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi er Tõnu Kaljuste.
Frumflutningur verður 16. apríl 2026 í Jaani Kirik (St. Johns Church) í Tallinn að lokinni sameiginlegri æfingaviku kóranna. Tónskáldin verða viðstödd frumflutninginn.
Verkefnið hefur verið í þróun frá árinu 2024 og verkefnisstjórn fram að frumflutningi er í höndum Valgerðar G. Halldórsdóttur/Crescendo.


Flytjendur
Estonian Philharmonic Chamber Choir
Estonian Philharmonic Chamber Choir (EPCC) er ein þekktasti tónlistarflytjandi heims. EPCC var stofnað árið 1981 af Tõnu Kaljuste, sem var listrænn stjórnandi og aðalstjórnandi næstu tuttugu árin og tók síðan aftur við 2021 eftir að Paul Hillier, Daniel Reuss og Kaspars Putniņš höfðu gegnt stöðunni í millitíðinni. Efnisskrá kórsins nær frá gregorískum söng og barokki til tónlistar 21. aldarinnar, með sérstakri áherslu á verk eistneskra tónskálda, svo sem Arvo Pärt, Veljo Tormis, Erkki-Sven Tüür, Galinu Grigoryevu, Toivo Tulev, Tõnu Kõrvits og Helenu Tulve. Á hverju starfsári heldur kórinn um 60–70 tónleika bæði í Eistlandi og erlendis.
EPCC hefur unnið með miklum fjölda framúrskarandi hljómsveitarstjóra og hljómsveita á heimsmælikvarða og er kærkominn gestur á fjölmörgum tónlistarhátíðum og framúrskarandi tónleikastöðum um allan heim. Mikilvægur þáttur í starfsemi kórsins eru upptökur og hefur kórinn verið svo lánsamur að vinna með þeim bestu í greininni sem hefur skilað sér í fjölmörgum verðlaunaplötum. Upptökur EPCC hafa tvisvar hlotið Grammy-verðlaun fyrir besta flutning kórtónlistar: árið 2007 fyrir plötuna Da Pacem (Harmonia Mundi) eftir Arvo Pärt með hljómsveitarstjóranum Paul Hillier og Adam's Lament (ECM) eftir Arvo Pärt með hljómsveitarstjóranum Tõnu Kaljuste. Alls hefur kórinn hlotið 16 Grammy-tilnefningar með verkum eftir Arvo Pärt, Erkki-Sven Tüür og tónlist frá Norðurlöndunum. Árið 2018 kom út upptakan Schnittke – Iðrunarsálmar. Pärt – Magnificat & Nunc dimittis (BIS), undir stjórn Kaspars Putniņš, sem hlaut Gramophone-verðlaunin og hljóðritanir EPCC hafa einnig hlotið Diapason d'Or, Preis der Deutschen Schallplattenkritik, Danish Music Award, de Choc de l'Année Classica 2014, Prix Caecilia og fleiri. Árið 2020 útnefndi BBC Music Magazine EPCC sem einn af 10 bestu kórum í heimi.
https://www.epcc.ee/en/
Cantoque Ensemble
Cantoque Ensemble var stofnað árið 2017 og er kammersönghópur átta til tólf söngvara með aðsetur í Reykjavík. Allir söngvararnir eru atvinnusöngvarar sem margir hverjir hafa komið fram víða um heim og hlotið margvísleg verðlaun fyrir söng sinn og tónlistarflutning.
Cantoque Ensemble var stofnað í norrænu samstarfi við barokksveitirnar Höör Barock og Camerata Öresund og voru sameiginlegir tónleikar þeirra tilnefndir til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónlistarviðburður ársins 2017. Cantoque Ensemble flutti kantötur Bachs á sumartónleikaröðinni í Skálholti með Bach-hljómsveit Skálholts undir stjórn hins virta hljómsveitarstjóra Andreas Spering. Kórinn leggur metnað sinn í að flytja nýja tónlist, bæði kirkjulega og veraldlega ásamt því að sinna íslenskum þjóðlagaarfi. Cantoque Ensemble vinnur í verkefnamiðuðu samstarfi við stjórnendur.
Meðal nýlegra verkefna Cantoque Ensemble má nefna áframhaldandi samstarf við Camerata Öresund, en einnig barokkhópinn Ensemble Nylandia frá Svíþjóð en tónleikum þeirra árið 2021var sjónvarpað á barokkhátíðinni Barokki Kuopio í Finnlandi og voru tilnefndir sem tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Frá árinu 2022 hefur Cantoque Ensemble einnig haldið árlega tónleika í Hallgrímskirkju á Myrkum músíkdögum, þar sem efnisskráin dregur upp portrettmynd af einu íslensku tónskáldi.
Árið 2023 var Cantoque Ensemble í samstarfi við Swiss Ensemble Choeur3 og listræna stjórnandann Abéliu Nordmann. Kórinn eru með aðsetur í Sviss en vinna yfir landamæri til Frakklands og Þýskalands. Saman héldu kórarnir tónleika bæði í Sviss og á Íslandi sumarið 2023 og héldu einnig masterklassa fyrir hljómsveitarstjóra og kórsöngvara á Basel-svæðinu þar sem íslensk kórverk voru kynnt.
https://www.cantoque-ensemble.com/
Tõnu Kaljuste, listrænn stjórnandi og aðalstjórnandi
Tõnu Kaljuste hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir fjölbreytta efnisskrá sína, allt frá óperum og klassískum sinfónískum verkum til samtímatónlistar. Hann hefur unnið með helstu samtímatónskáldum Norður- og Austur-Evrópu, svo sem Alfred Schnittke, György Kurtág, Krzysztof Penderecki, Giya Kancheli og Einojuhani Rautavaara, og er viðurkenndur sem einn helsti málsvari og sérfræðingur í túlkun eistneskra tónskálda, þar á meðal Arvo Pärt, Erkki-Sven Tüür, Tõnu Kõrvits, Veljo Tormis og Heino Eller.
Árið 1981 stofnaði Tõnu Kaljuste Eistneska fílharmóníukórinn. Hann stofnaði Kammersveitina í Tallinn árið 1993 og stjórnaði henni um langa hríð og sneri aftur sem listrænn stjórnandi hennar á árunum 2019–2024. Hann er stofnandi og listrænn stjórnandi verkefnisleikhússins Nargen-óperunnar (stofnuð árið 2004) og hefur stýrt Nargen-hátíðinni frá árinu 2006.
Tõnu Kaljuste hlaut Grammy-verðlaunin ásamt EPCC fyrir besta kórflutning fyrir Arvo Pärt plötuna Adam's Lament árið 2014. Hann hefur hlotið fjölda Grammy-tilnefninga í ýmsum flokkum, allt frá óperum til sinfónískrar tónlistar. Árið 2019 hlaut hann Alþjóðlegu klassísku tónlistarverðlaunin (ICMA) fyrir hljóðritun á sinfóníum Arvo Pärt með NFM Wrocław fílharmóníusveitinni. Upptökur Kaljuste hafa einnig unnið til annarra virtra verðlauna eins og Cannes Classical Award (1999), Diapason d'Or (2000), Edison Musical Award (2000), Classic BRIT Award (2003), Prix Caecilia (2023). Hann hefur hljóðritað fyrir ECM Records, Virgin Classic, BIS og Caprice Records útgáfurnar. Kaljuste hefur verið sæmdur mörgum verðlaunum í heimalandi sínu, Eistlandi: Hvítu stjörnuorðunni, 4. flokki (1998) og Þjóðskjaldarmerkinu, 2. flokki (2000), fyrstu Maríuorðu dómkirkjusafnaðarins í Tallinn (2000), aðalverðlaun menningarsjóðs Eistlands (2004), nokkur menningarverðlaun fyrir flutning á tónlist Veljo Tormis (Eistneskar ballöður árið 2005, Eistnesk kvennalög 2007, eistnesk karlalög 2009), túlkunarverðlaun eistneska tónlistarráðsins (2010), menningarverðlaun utanríkisráðuneytisins (2011), aðalverðlaun eistneska menningarsjóðsins (2021). Hann hefur hlotið Eri Klas námsstyrkinn (2021), heiðursmerki Harju-sýslu (2023) og skjaldarmerki Tallinn (2023). Hann hlaut eistnesk leiklistarverðlaun árið 2024. Kaljuste er heiðursstjórnandi Tallinn-borgar (2024) og verðlaunahafi National Lifetime Achievement Award in Culture (2025).
https://www.epcc.ee/en/the-choir/#people
Tónskáld
Helena Tulve
Helena Tulve(1972) er eistneskt tónskáld en tónlist hennar einkennist af stöðugum breytingum og stöðugu ferli. Auk tónsmíða hefur hún kynnt sér gregorískan söng rækilega og ýmsar munnlegar tónlistarhefðir eru enn viðfangsefni hennar. Hún hefur meðal annars verið pöntuð af NYYD Ensemble, Ensemble U:, ensemble diferencias, hollenska kammerkórnum, kammersveitinni í München, Uppsala Chamber Orchestra, Ensemble Courage, Ensemble Aleph, Seattle Chamber Players, Deutschlandradio, Schumannfest Düsseldorf, Fondation Prince Pierre of Monaco, Nieuw Ensemble, Stockholm Saxophone Quartet og Gaudeamus Music Week.
Helena Tulve var staðartónskáld Eistneska fílharmóníusveitarkórsins á tónleikatímabilinu 2001/02. Kammerópera hennar It Is Getting So Dark, byggð á dagbókarverki japanska 10. aldar rithöfundarins Sei Shonagon, var frumflutt árið 2004. Árið 2006 var Helena Tulve aðaltónskáldið á Estonian Music Days og árið 2012 var hún staðartónskáld við alþjóðlegu tónlistarhátíðina í Pärnu. Starfsárið 2012/13 starfaði hún sem staðartónskáld með Sinfóníuhljómsveit Eistlands.
http://helenatulve.net/
Hugi Guðmundsson
Hugi Guðmundsson (1977) nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk meistaraprófi í tónsmíðum frá Konunglega danska tónlistarháskólanum árið 2005. Hugi semur hljóðfæratónlist sem og söng- og kórtónlist, allt frá einleiksverkum til sinfónía, óratóría og ópera. Hann hefur verið tilnefndur tólf sinnum til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hlaut verðlaunin árin 2008, 2013, 2015, 2016 og 2023. Hugi hefur verið staðartónskáld á ýmsum starfsstöðvum, m.a. í Skálholtstónleikaröðinni og dvaldi í „residensíu“ í Arvo Pärt-miðstöðinni haustið 2025. Verk hans hafa verið flutt á fjölmörgum alþjóðlegum hátíðum, svo sem Musicarama í Hong Kong S.A.R., ISCM í Króatíu, MATA í New York, Alþjóðlegu kirkjutónlistarhátíðinni í Osló og Norrænum músíkdögum, auk þess sem þau hafa verið flutt reglulega á Íslandi. Hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2023 fyrir Maríuguðspjall en verkið var einnig tilnefnt til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Hugi verður staðartónskáld hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands starfsárin 2026-2027 og 2027-2028, á sama tíma og Barbara Hannigan tekur við sem aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi.