top of page
VGH©sunnaben.jpg

Valgerður G. Halldórsdóttir (Vala) er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur þó lengst af búið í Hafnarfirði. Hún er með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, Dipl. ABRSM í klassískum söng frá Söngskólanum í  Reykjavík og nam fiðlu- og píanóleik við Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Hún söng um árabil í kammerkórum, m.a. Vox Feminae, Melodiu og Hljómeyki og vann um tíma við útfararsöng. Hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands (nú LHÍ) árið 1991 og starfaði í auglýsingageiranum í nærri þrjá áratugi, bæði sem hönnuður, listrænn stjórnandi og sem eigandi auglýsingastofu, áður en hún sneri sér alfarið að menningarstjórnun og stofnaði CRESCENDO.

 

Vala var sýningarstjóri og aðalsýningarhönnuður nýrrar grunnsýningar Byggðasafnsins í Görðum, Akranesi sem opnaði árið 2019 en sýningarhönnunin hlaut tillnefningu til Íslensku safnaverðlaunanna. Hún var framkvæmdastjóri Tónverkamiðstöðvar í tæp sex ár, fram til loka árs 2022, þar sem hún sinnti kynningu á íslenskri samtímatónlist og vann í samstarfi við alþjóðlegar stofnanir og samstarfsaðila. Hún ritstýrði fyrstu STATUS-skýrslunni, ásamt Cathérine LeFévbre sem norrænir hagaðilar í samtímatónlist gáfu út árið 2022. Hún hefur setið í stjórnum félagasamtaka – sat í dómnefnd Íslensku tónlistarverðlaunanna 2016-2018 og sat í stjórn IAMIC (International Association of Music Centres) á árunum 2019–2022, m.a. sem féhirðir og er heiðursfélagi samtakanna. Hjá CRESCENDO hefur hún m.a. framleitt Óperuna hundrað þúsund fyrir Svartan jakka, gefið út plötuna NÁND, sinnt umboðsmennsku fyrir tónskáld og tónlistarflytjendur og kynningar- og verkefnastjórn fyrir tónlistarhátíðir. Frá haustinu 2025 hefur hún setið í Þjóðleikhúsráði, skipuð án tilnefningar. 
 

© 2024 by CRESCENDO

bottom of page